Kennarakvika
Kennarakvika
Leit
Skrá inn
↓
Persónuleg verkfæri
Ekki skráð/ur inn
Spjall
Framlög
Stofna aðgang
Skrá inn
Leiðsagnarval
Flakk
Nýlegar breytingar
Handahófsvalin síða
Hlaða inn skrá
Allar skrár
Notendur
Allir notendur
Notandahandbók
Breyti
Verkefni fyrir hæfniviðmið í textílmennt
Úr Kennarakvika
Viðvörun:
Þú ert ekki innskráð(ur). Vistfang þitt verður sýnt opinberlega ef þú gerir einhverjar breytingar. Ef þú
skráir þig inn
eða
stofnar aðgang
munu breytingarnar þínar vera tengdar við notandanafn þitt, ásamt öðrum kostum.
Amasendingavörn.
Ekki
fylla þetta út!
Fram eru komnar tillögur að endurskoðun greinarsviða aðalnámsskrár grunnskóla frá 2013. Þar er m.a. ítarlegar farið í þá þætti sem snerta skuli á fagreinunum. Hér eru töflurnar úr tillögunum (bls. 37-38) settar upp með hlekkjum á hvert undir-hæfniviðmið með það að miði að tengja megi þau inn á verkefni eða efni sem miða að því að ná þeim markmiðum. Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni: <blockquote>„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“</blockquote> == Verklag == {| class="wikitable" ! Yfirheiti !! Við lok 4. bekkjar getur nemandi !! Við lok 7. bekkjar getur nemandi !! Við lok 10. bekkjar getur nemandi |- ! Áhöld | notað einfaldar aðferðir og beitt viðeigandi áhöldum | beitt grunnaðferðum og áhöldum greinarinnar | beitt fjölbreyttum aðferðum og áhöldum greinarinnar við formun textílafurða |- ! Efnisval | unnið úr nokkrum gerðum textílefna | unnið úr fjölbreyttum textílefnum | rökstutt eigið val á textílefni eftir viðfangsefni og efnisvali |- ! Útfærsla | unnið eftir einföldum leiðbeiningum | unnið með einföld snið og uppskriftir | unnið með snið og uppskriftir, tekið mál, áætlað stærðir og efnisþörf |- ! Vinnuvernd | beitt líkamanum rétt við vinnu sína | beitt viðeigandi líkamsstöðu við vinnu sína | beitt viðeigandi vinnustellingum og verið meðvitaður um líkamsstöðu sína við vinnu |} == Sköpun, hönnun og tækni == {| class="wikitable" ! Yfirheiti ! Við lok 4. bekkjar getur nemandi ! Við lok 7. bekkjar getur nemandi ! Við lok 10. bekkjar getur nemandi |- ! Hugmyndavinna | tjáð hugmyndir sínar með einfaldri skissu, | þróað eigin hugmyndir í textílverk og unnið eftir ferli, | beitt skapandi og gagnrýnni hugsun í hönnun og textílvinnu, |- ! Sköpun | skreytt textílvinnu á einfaldan hátt, | notað fjölbreyttar aðferðir við skreytingu textílafurða, | skreytt textílafurð á skapandi og persónulegan hátt, |- ! Fagorð/hugtök | notað nokkur hugtök sem tengjast greininni, | útskýrt eigið verk og notað til þess hugtök greinarinnar, | lagt mat á eigin vinnubrögð og hönnun og notað til þess viðeigandi hugtök, |- ! Hugmyndavinna (ýmis miðlun) | nýtt ýmsa miðla til að afla einfaldra hugmynda. | nýtt helstu miðla til að afla upplýsinga um hugmyndavinnu og útfærslu á þeim, | notað margvíslega miðla til að afla upplýsinga fyrir hugmyndir að verkefnum sem tengjast textíl, hönnun og útfærslu á þeim, |- ! Tækni | nýtt hugbúnað við hönnun eigin mynsturs eða myndefnis fyrir textílvinnu. | nýtt hugbúnað og tölvustýrð tæki við hönnun og vinnslu eigin verka í textílvinnu. |} == Menning og umhverfi == {| class="wikitable" ! Yfirheiti ! Við lok 4. bekkjar getur nemandi ! Við lok 7. bekkjar getur nemandi ! Við lok 10. bekkjar getur nemandi |- ! Efnisfræði | fjallað um íslenskt hráefni og unnið með það á einfaldan hátt, | fjallað um efnisfræði svo sem eiginleika náttúruefna og gerviefna, | þekkt mun á eiginleikum náttúruefna og gerviefna út frá áferð, |- ! Merkingar | gert grein fyrir nokkrum tegundum textílefna, | fjallað um helstu tákn og merkingar textílefna, | þekkt mun á helstu táknum og merkingum textílefna, |- ! Endurnýting | notað endurunnin efni í textílvinnu, | nýtt endurunnin efni í textílvinnu og gert grein fyrir endurnýtingu og efnisveitum, | nýtt endurunnin efni í textílvinnu, gert grein fyrir endurnýtingu og efnisveitum og sett í samhengi við sjálfbærni og umhverfisvernd, |- ! Menning | greint nokkur einkenni íslensks handverks í textílvinnu. | greint og fjallað um hefðir í textílvinnu á Íslandi og sett í samhengi við sögu. | greint og fjallað um textílvinnu og -verk í samhengi við sögu, samfélag og listir. |}
Breytingarágrip:
Athugaðu að aðrir notendur geta breytt eða fjarlægt öll framlög til Kennarakvika. Ef þú vilt ekki að textanum verði breytt skaltu ekki senda hann inn hér.
Þú lofar okkur einnig að þú hafir skrifað þetta sjálfur, að efnið sé í almannaeigu eða að það heyri undir frjálst leyfi. (sjá
Kennara Wiki:Höfundaréttur
).
EKKI SENDA INN HÖFUNDARRÉTTARVARIÐ EFNI ÁN LEYFIS RÉTTHAFA!
Hætta við
Breytingarhjálp
(opnast í nýjum glugga)