Verkefni fyrir hæfniviðmið í textílmennt

Úr Kennarakvika

Fram eru komnar tillögur að endurskoðun greinarsviða aðalnámsskrár grunnskóla frá 2013. Þar er m.a. ítarlegar farið í þá þætti sem snerta skuli á fagreinunum. Hér eru töflurnar úr tillögunum (bls. 37-38) settar upp með hlekkjum á hvert undir-hæfniviðmið með það að miði að tengja megi þau inn á verkefni eða efni sem miða að því að ná þeim markmiðum.

Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:

„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“

Verklag[breyta]

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Áhöld notað einfaldar aðferðir og beitt viðeigandi áhöldum beitt grunnaðferðum og áhöldum greinarinnar beitt fjölbreyttum aðferðum og áhöldum greinarinnar við formun textílafurða
Efnisval unnið úr nokkrum gerðum textílefna unnið úr fjölbreyttum textílefnum rökstutt eigið val á textílefni eftir viðfangsefni og efnisvali
Útfærsla unnið eftir einföldum leiðbeiningum unnið með einföld snið og uppskriftir unnið með snið og uppskriftir, tekið mál, áætlað stærðir og efnisþörf
Vinnuvernd beitt líkamanum rétt við vinnu sína beitt viðeigandi líkamsstöðu við vinnu sína beitt viðeigandi vinnustellingum og verið meðvitaður um líkamsstöðu sína við vinnu

Sköpun, hönnun og tækni[breyta]

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Hugmyndavinna tjáð hugmyndir sínar með einfaldri skissu, þróað eigin hugmyndir í textílverk og unnið eftir ferli, beitt skapandi og gagnrýnni hugsun í hönnun og textílvinnu,
Sköpun skreytt textílvinnu á einfaldan hátt, notað fjölbreyttar aðferðir við skreytingu textílafurða, skreytt textílafurð á skapandi og persónulegan hátt,
Fagorð/hugtök notað nokkur hugtök sem tengjast greininni, útskýrt eigið verk og notað til þess hugtök greinarinnar, lagt mat á eigin vinnubrögð og hönnun og notað til þess viðeigandi hugtök,
Hugmyndavinna (ýmis miðlun) nýtt ýmsa miðla til að afla einfaldra hugmynda. nýtt helstu miðla til að afla upplýsinga um hugmyndavinnu og útfærslu á þeim, notað margvíslega miðla til að afla upplýsinga fyrir hugmyndir að verkefnum sem tengjast textíl, hönnun og útfærslu á þeim,
Tækni nýtt hugbúnað við hönnun eigin mynsturs eða myndefnis fyrir textílvinnu. nýtt hugbúnað og tölvustýrð tæki við hönnun og vinnslu eigin verka í textílvinnu.

Menning og umhverfi[breyta]

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Efnisfræði fjallað um íslenskt hráefni

og unnið með það á einfaldan hátt,

fjallað um efnisfræði svo sem eiginleika náttúruefna og gerviefna, þekkt mun á eiginleikum náttúruefna og gerviefna út frá áferð,
Merkingar gert grein fyrir nokkrum tegundum textílefna, fjallað um helstu tákn og merkingar textílefna, þekkt mun á helstu táknum og merkingum textílefna,
Endurnýting notað endurunnin efni í textílvinnu, nýtt endurunnin efni í textílvinnu og gert grein fyrir endurnýtingu og efnisveitum, nýtt endurunnin efni í textílvinnu, gert grein fyrir endurnýtingu og efnisveitum og sett í samhengi við sjálfbærni og umhverfisvernd,
Menning greint nokkur einkenni íslensks handverks í textílvinnu. greint og fjallað um hefðir í textílvinnu á Íslandi og sett í samhengi við sögu. greint og fjallað um textílvinnu og -verk í samhengi við sögu, samfélag og listir.