Verkefni fyrir hæfniviðmið fyrir náttúruvísindin/ANG-VÍS-HUG-4

Úr Kennarakvika
ANG-VÍS-HUG-4 ANG-VÍS-HUG-7 ANG-VÍS-HUG-10

Einföld hugtök sem henta fyrir hæfniviðmið hugtakanotkunar við lok 4. bekkjar.

Hugtök úr Halló heimur 1[breyta]

afkvæmi
barn foreldra, sem menn eða dýr ala af sér.
afþakka
þiggja ekki það sem er í boði.
alæta
dýr sem étur bæði jurtir og kjöt.
annatími
tími þegar mikið er að gera.
árstíð
ákveðinn hluti ársins, vor, sumar, haust eða vetur.
ábyrgð
að hafa umsjón með einhverju.
Barnasáttmálinn
reglur um framkomu við börn.
beinagrind
öll bein líkamans sem ein heild.
bílbelti
öryggisbelti sem notuð eru í bíl.
blindrahundur
hundur sem aðstoðar blint og sjóndapurt fólk.
brum
fyrsti vöxtur blaða á trjágreinum.
búkur
magi, brjóst og bak.
búrdýr
dýr sem búa í búri t.d. páfagaukar og fiskar.
búsvæði
svæði sem lífvera velur að búa í og hentar best.
byggingarefni
efni sem hægt er að nota til að búa eitthvað til úr.
bænahús
hús þar sem fólk iðkar trú.
dýralæknir
læknir sem læknar dýr en ekki fólk.
dæla
hjartað ýtir blóði frá sér og pumpar því þannig út í blóðrásina.
einkabíll
bíll sem er í eigu einstaklings.
einkastaður
staður sem óviðeigandi er að stara á og aðrir mega ekki koma við.
endurskinsmerki
hlutur sem endurvarpar ljósi.
endurspeglast
það að speglast, að skoppa til baka.
fara á fjall
kindur og lömb fara á fjall að vori til sumardvalar.
farþegi
allir í ökutækinu nema bílstjórinn.
ferfætt
með fjóra fætur.
fjós
bústaður kúa.
fjölbreytt
af ýmsu tagi, margs konar.
fjölnota
hlutur sem hægt er að nota aftur og aftur.
fjölskyldumeðlimur
einstaklingur sem tilheyrir fjölskyldunni.
forréttindi
réttindi sem einhver nýtur umfram aðra.
fóður
það sem dýrum er gefið að éta.
framleiða
að búa eitthvað til í miklu magni.
frjósa
þegar t.d. vatn kólnar niður fyrir frostmark og breytist í ís.
fæða
matur.
gangbraut
leið sem á að nota til að fara yfir götu.
gangstétt
steinlögð gangbraut meðfram götum.
gatnamót
staður þar sem götur mætast.
gegnsætt
ljós sést vel í gegn.
gerviefni
efni sem er ekki til í náttúrunni heldur framleitt úr tilbúnum efnum.
glitauga
endurskinsflötur, t.d. á reiðhjólum.
gæra
skinn af kind með ullinni á.
háð
að þurfa aðstoð með athafnir daglegs lífs.
hálfgegnsætt
ljós sést að hluta til í gegn.
hálfsystkini
systkini sem eiga eitt sameiginlegt foreldri.
heimilisstörf
störf sem þarf að sinna á heimilinu.
hellir
hvelfing inni í kletti, oft með þröngu opi.
hey
gras sem búið er að þurrka.
hitamælir
tæki til að mæla hita.
huldufólk
yfirnáttúrulegar mannverur (oftast ósýnilegar) taldar búa í hólum og björgum.
húsnæði
staður til að búa á.
hylja
fela eitthvað.
hægðir
úrgangsefni fæðu sem líkaminn skilar, kúkur.
hætta
eitthvað hættulegt, háski, voði eða ógn.
iðka trú
að rækta trú sína.
innsæi
að hafa næman skilning, t.d. á tilfinningum.
ímyndunarafl
hæfileikinn til að láta sér detta margt í hug.
jarðvarmi
hiti í jörðu sem berst upp á yfirborð með vatni eða gufu.
keðjuhlíf
ver keðju á reiðhjóli svo ekkert flækist í henni.
kryppa
bunga á hrygg manneskju eða dýrs.
landnámsfólk
fólkið sem kom fyrst til Íslands.
liðugt
eiga auðvelt með að beygja sig og sveigja.
litríkt
eitthvað sem er í mörgum litum.
líkami
líkaminn með vöðvum, beinum, líffærum og öllu tilheyrandi.
líkamshluti
hluti líkamans, t.d. handleggur eða höfuð.
ljósgjafi
fyrirbæri, áhald eða tæki sem gefur sýnilegt ljós.
loftpúði
púði í bíl sem blæs út við árekstur.
lygnt
þegar það er enginn eða mjög lítill vindur.
manneskja
mannvera, persóna, ekki dýr.
matarsóun
þegar mat er hent að óþörfu.
málmur
efni með málmgljáa, oftast hart og þungt.
mánuður
í einu ári eru 12 mánuðir. Mánuður er 30 eða 31 dagur nema febrúar sem er 28 eða 29 dagar.
melta
vinna næringu úr matnum.
merkjagjöf
merki sem lögregla gefur þegar hún stjórnar umferð.
milljarður
1.000.000.000, þúsund milljónir.
náttúrulegt
það sem tilheyrir náttúrunni.
nytsamlegt
gagnlegt eða þarft.
nægjusemi
að þurfa ekki að eiga mikið.
næmt
að hafa sterka tilfinningu fyrir einhverju.
ofbeldi
að meiða annað fólk annaðhvort líkamlega eða andlega.
olnbogabót
kverkin þar sem upphandleggur og framhandleggur mætast.
orka
eldsneyti fyrir líkamann svo að hann virki.
orkumikið
hefur mikla orku.
ógegnsætt
þegar ljós sést ekki í gegnum hlut.
ólíkt
ekki líkt, er mismunandi t.d. í útliti og innræti.
ósýnilegt
þegar eitthvað sést ekki en er samt til.
regla
fyrirmæli sem þarf að fara eftir.
regnbogi
litríkur ljóssveigur sem sést á himni þegar sólin skín í votviðri.
reikistjarna
hnöttur sem er á sporbaug umhverfis sólina.
réttir
hólfað gerði þar sem fé er dregið sundur á haustin.
réttlátt
er sanngjarnt, gerir það sem er rétt.
ríkmannlegt
líta út fyrir að vera ríkt.
samkomulag
þegar einstaklingar geta allir sætt sig við sömu lausnina.
sammála
að finnast það sama.
sáttfýsi
að geta hlustað á aðra og vilja sættast.
sérhannað
hannað til að nota á ákveðinn hátt.
sérkenni
það sem er alveg sérstakt við eitthvað, einkennir það.
síbreytilegt
alltaf að breytast.
sjávarlífvera
lífvera sem býr í sjó.
sjúkralið
fólk sem starfar í sjúkrabíl.
skipuleggja
að hafa allt í röð og reglu.
skjól
vörn gegn kulda og veðri.
skynfæri
líffæri sem gerir okkur kleift að skynja umhverfi okkar.
smala
að safna saman eða reka búfé úr sumarhögum.
smádýr
lítil dýr á landi, í vötnum og sjó.
smáfugl
lítill fugl, oft notað um spörfugla (nema hrafninn).
snerta
koma við.
sólarhringur
24 klukkutímar frá miðnætti til miðnættis.
sólkerfi
sól, reikistjörnur og tunglin sem þeim fylgja.
sólúr
teinn í miðri hringlaga skífu og varpar skugga sem færist eftir stöðu sólar.
spegilmynd
mynd sem sést í spegli.
speni
hluti af júgrinu þar sem mjólkin kemur út.
stirt
eiga erfitt með hreyfingar.
stía
afmarkað hólf þar sem dýr búa.
stjúpsystkini
börn sem alast upp saman sem systkini en eiga ekki sömu foreldra.
stórvaxið
að vera stórt.
sundrandi
smá lífvera sem breytir leifum af plöntum og dýrum í jarðveg.
svifdýr
afar smá dýr sem svífa
tannskemmd
skemmd eða hola í tönn.
tillitssemi
að taka tillit til annarra.
trúarbrögð
trú á tiltekinn guð eða guði.
umferðarmannvirki
byggingar og hlutir sem tengjast umferðinni.
umheimur
veröldin umhverfis okkur.
umhverfi
það sem er umhverfis og í nágrenni við okkur.
umhyggja
að hugsa vel um aðra, fólk eða dýr.
umlykja
að liggja utan um.
ummerki
spor, þegar merki um umgang sjást.
undirgöng
gangvegur t.d. undir umferðargötu.
uppskera
matjurtir sem búið er að taka upp úr görðum.
urða
að grafa sorp í jörðu.
úthvíld
að hafa hvílt sig nóg.
útlit
hvernig eitthvað lítur út. mörg saman um í sjónum.
sýklar
örverur sem valda sjúkdómum.
sættast
að ná sáttum vegna vandamáls.