Hér má finna yfirlit yfir hæfniviðmið íslenskukafla Aðalnámsskrár grunnskóla ásamt hlekkjum á undirsíður þar sem koma má fyrir ítarfefni fyrir hvert hæfniviðmið. Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:
„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Framsögn
|
beitt skýrum og áheyrilegum framburði [ANG-ÍSL-FRM-4]
|
flutt mál sitt skýrt og áheyrilega og gert sér grein fyrir undirstöðuatriðum góðrar framsagnar [ANG-ÍSL-FRM-7]
|
flutt mál sitt skýrt og áheyrilega með viðeigandi talhraða, tónfalli, áherslum og fasi [ANG-ÍSL-FRM-10]
|
Tjáning
|
sagt frá atburði eða fyrirbæri, tjáð sig frammi fyrir hópi og staðið fyrir máli sínu [ANG-ÍSL-TJÁ-4]
|
gert grein fyrir þekkingu sinni og reynslu og tjáð hugmyndir sínar og skoðanir frammi fyrir hópi [ANG-ÍSL-TJÁ-7]
|
miðlað þekkingu sinni og reynslu, tjáð hugmyndir sínar og skoðanir og fært rök fyrir þeim með fjölbreyttum leiðum [ANG-ÍSL-TJÁ-10]
|
Hlustun og áhorf
|
hlustað og horft af athygli á valið efni og greint frá upplifun sinni [ANG-ÍSL-HÁH-4]
|
hlustað og horft af athygli á fjölbreytt efni, beitt þekkingu sinni og reynslu til að skilja það og greint frá aðalatriðum [ANG-ÍSL-HÁH-7]
|
horft á, hlustað og tekið eftir upplýsingum í fjölbreyttu efni og greint og miðlað innihaldi þess á gagnrýninn hátt [ANG-ÍSL-HÁH-10]
|
Áhorf
|
horft og hlustað af athygli á fjölbreytt efni og greint frá upplifun sinni [ANG-ÍSL-ÁHF-4]
|
horft af athygli á myndefni, beitt þekkingu sinni og reynslu til að skilja það sem sýnt er og greint frá aðalatriðum [ANG-ÍSL-ÁHF-7]
|
horft og tekið eftir upplýsingum í myndefni og greint og miðlað innihaldi þess á gagnrýninn hátt [ANG-ÍSL-ÁHF-10]
|
Nýting miðla
|
nýtt sér og endursagt efni á stafrænu formi [ANG-ÍSL-MIÐ-4]
|
nýtt sér myndefni og stafrænt efni á gagnrýninn hátt og greint frá aðalatriðum þess [ANG-ÍSL-MIÐ-7]
|
nýtt sér fjölbreytta hljóð- og myndmiðla til upplýsingar og afþreyingar og tekið afstöðu til þess sem þar er birt [ANG-ÍSL-MIÐ-10]
|
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Lesfimi
|
beitt aðferðum við umskráningu hljóða og stafa svo lestur flæði vel og merking texta komist til skila [ANG-ÍSL-LSF-4]
|
lesið texta við hæfi á nákvæman og sjálfvirkan hátt og með tjáningu sem sýnir skilning á tilgangi og merkingu texta [ANG-ÍSL-LSF-7]
|
lesið fjölbreytta texta af öryggi, í góðu flæði og í viðeigandi hendingum og með tjáningu í samræmi við aðstæður hverju sinni [ANG-ÍSL-LSF-10]
|
Lestraraðferðir
|
þekkt og beitt einföldum aðferðum við lestur og tilgreint dæmi um ólíkan tilgang lestrar [ANG-ÍSL-LSA-4]
|
beitt lestraraðferðum sem hæfa tilgangi og viðfangsefni hverju sinni [ANG-ÍSL-LSA-7]
|
valið og beitt fjölbreyttum lestraraðferðum sem hæfa tilgangi og viðfangsefni hverju sinni [ANG-ÍSL-LSA-10]
|
Orðaforði
|
beitt góðum orðaforða við að skilja texta og notað einfaldar aðferðir til að ráða í merkingu ókunnra orða [ANG-ÍSL-ORÐ-4]
|
beitt fjölbreyttum orðaforða og fyrri þekkingu til að mynda samhengi og skilning í lestri og notað aðferðir til að ráða í merkingu ókunnra orða og orðasambanda [ANG-ÍSL-ORÐ-7]
|
beitt ríkulegum orðaforða, fyrri þekkingu og reynslu til að mynda samhengi og skilning í lestri og notað fjölbreyttar aðferðir til að efla orðaforða sinn [ANG-ÍSL-ORÐ-10]
|
Lesskilningur
|
skilið augljós efnisatriði valinna texta, greint og lagt mat á inntak þeirra og dregið einfaldar ályktanir [ANG-ÍSL-LSS-4]
|
skilið, fjallað um og dregið saman efni ólíkra texta, dregið ályktanir af efninu, greint og lagt mat á merkingu þeirra og tilgang á gagnrýninn hátt [ANG-ÍSL-LSS-7]
|
skilið og fjallað um fjölbreytta texta, greint þá og borið saman á margvíslegan hátt og lagt rökstutt og gagnrýnið mat á inntak þeirra og eiginleika [ANG-ÍSL-LSS-10]
|
Lestrarmenning
|
valið og lesið sér til ánægju fjölbreytt lesefni sem hæfir aldri [ANG-ÍSL-LSM-4]
|
valið og lesið sér til gagns og ánægju fjölbreytta texta og miðlað áhuga sínum og skoðunum til annarra [ANG-ÍSL-LSM-7]
|
valið og lesið sér til gagns og ánægju fjölbreytta texta, unnið með efni þeirra á fjölbreyttan hátt og miðlað til annarra [ANG-ÍSL-LSM-10]
|
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Lestur og túlkun bókmennta
|
unnið með ævintýri, sögur og ljóð ætluð börnum [ANG-ÍSL-LTB-4]
|
lesið ýmsar bókmenntir og unnið með efni þeirra á fjölbreyttan hátt [ANG-ÍSL-LTB-7]
|
lesið, túlkað, metið og fjallað um fjölbreyttar íslenskar og erlendar bókmenntir [ANG-ÍSL-LTB-10]
|
Bókmennta-greining
|
beitt einföldum bókmenntahugtökum í umfjöllun um bókmenntir [ANG-ÍSL-BGR-4]
|
beitt nokkrum grunnhugtökum í bókmenntafræði við umfjöllun um fjölbreyttar bókmenntir [ANG-ÍSL-BGR-7]
|
beitt algengum hugtökum í bókmenntafræði við greiningu og umfjöllun um fjölbreyttar bókmenntir frá ýmsum tímum [ANG-ÍSL-BGR-10]
|
Bókmennta-arfurinn
|
lesið einfalda texta frá fyrri tímum og sett sig í spor persóna og lesenda í fortíðinni [ANG-ÍSL-BAR-4]
|
lesið einfalda texta frá fyrri tímum og áttað sig á því að þeir mótist af sögulegu samhengi [ANG-ÍSL-BAR-7]
|
lesið og skilið texta frá fyrri tímum, áttað sig á því að þeir mótist af sögulegu samhengi og borið saman við eigin samtíð [ANG-ÍSL-BAR-10]
|
Ljóð
|
áttað sig á grunn-einkennum ljóða og unnið með innihald þeirra [ANG-ÍSL-LJÓ-4]
|
notað einföld bókmenntahugtök í umræðu og vinnu með innihald og einkenni ljóða frá ólíkum tímum [ANG-ÍSL-LJÓ-7]
|
notað algeng bókmenntahugtök í umfjöllun um bundið mál og óbundið og lesið og túlkað fjölbreytt ljóð frá ýmsum tímum [ANG-ÍSL-LJÓ-10]
|
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Skrift og frágangur
|
dregið rétt til stafs, skrifað skýrt og læsilega og á lyklaborð [ANG-ÍSL-SKF-4]
|
miðlað texta í gegnum sjálfvirka og læsilega skrift og fyrirhafnarlítinn innslátt á lyklaborð og gengið frá texta samkvæmt fyrirmælum [ANG-ÍSL-SKF-7]
|
haft vald á ólíkum leiðum til að miðla rituðu máli og getur valið þá leið sem hentar tilgangi og lesendum [ANG-ÍSL-SKF-10]
|
Uppbygging texta
|
búið til setningar og málsgreinar og notað til þess algengar samtengingar [ANG-ÍSL-UBT-4]
|
skrifað texta þar sem málsgreinar eru fjölbreyttar og texta er skipt upp í efnisgreinar [ANG-ÍSL-UBT-7]
|
skrifað texta þar sem efnisatriðum er skipað í röklegt samhengi, góður þráður er á milli efnisgreina og kaflaskipting er skýr [ANG-ÍSL-UBT-10]
|
Textategundir og málnotkun
|
skrifað ólíkar textategundir og skilur að hverjum texta er ætlað ákveðið hlutverk [ANG-ÍSL-TTM-4]
|
skipulagt og orðað texta á þann hátt sem hæfir tilefni, viðtakendum og birtingarformi [ANG-ÍSL-TTM-7]
|
beitt ríkulegu tungutaki, fjölbreyttum orðaforða og málsniði í texta eftir því hver tilgangur skrifanna er, fyrir hvaða viðtakendur er skrifað og hvaða birtingarform er valið [ANG-ÍSL-TTM-10]
|
Tjáning í texta
|
sett fram eigin hugmynd í texta, metið og lagfært með eða án hjálpargagna [ANG-ÍSL-TJT-4]
|
tjáð hugmyndir sínar, reynslu og sköpun í texta, metið, mótað og endurskrifað með hliðsjón af hjálpargögnum [ANG-ÍSL-TJT-7]
|
samið fjölbreyttan texta til að tjá hugmyndir, skoðanir, reynslu og sköpunarkraft, metið og endurbætt með hliðsjón af gagnrýni og hjálpargögnum [ANG-ÍSL-TJT-10]
|
Stafsetning og greinarmerkja-setning
|
beitt einföldum stafsetningarreglum og einföldum reglum við greinarmerkjasetningu [ANG-ÍSL-STS-4]
|
beitt algengum atriðum stafsetningar og greinarmerkjasetningar og notað tiltæk hjálpargögn við hæfi [ANG-ÍSL-STS-7]
|
beitt helstu atriðum stafsetningar og greinarmerkjasetningar og notað til þess reglur um réttritun og önnur hjálpartæki [ANG-ÍSL-STS-10]
|
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Einkenni málsins
|
þekkt og rætt ýmis einkenni málsins [ANG-ÍSL-EKM-4]
|
beitt málfræðiþekkingu sinni í umræðu um ýmis einkenni málsins og málnotkun sína [ANG-ÍSL-EKM-7]
|
beitt málfræðiþekkingu sinni í umræðu um tungumálið, þróun og einkenni þess og nýtt hana í eigin málnotkun [ANG-ÍSL-EKM-10]
|
Fjölbreytt málnotkun
|
beitt töluðu máli og rituðu af nokkru öryggi og með orðaforða og málskilningi sem hæfir aldri [ANG-ÍSL-FMN-4]
|
notað góðan orðaforða í ræðu og riti og nýtt sér fjölbreytt málsnið við orðmyndun, tal og ritun [ANG-ÍSL-FMN-7]
|
áttað sig á fjölbreyttum tilbrigðum í orðaforða og málnotkun og beitt mismunandi málsniði eftir efni og tilefni í ræðu og riti [ANG-ÍSL-FMN-10]
|
Sköpunarkraftur
|
áttað sig á sköpunarmætti tungumálsins svo sem með því að ríma og fara í orðaleiki [ANG-ÍSL-SKP-4]
|
nýtt orðaforða sinn til að skapa ný orð og orðasambönd og notað þau í texta [ANG-ÍSL-SKP-7]
|
áttað sig á og beitt sköpunarmætti tungumálsins og nýtt það m.a. við ritun, tal, nýyrðasmíð, í orðaleikjum og skáldskap [ANG-ÍSL-SKP-10]
|
Orðflokkar
|
áttað sig á mismunandi hlutverki nafnorða, lýsingarorða og sagnorða [ANG-ÍSL-FLO-4]
|
áttað sig á hvernig orðaforðinn skiptist í sagnorð, fallorð og óbeygjanleg orð og greint hlutverk og helstu einkenni þeirra [ANG-ÍSL-FLO-7]
|
áttað sig á beygingarlegum og merkingarlegum einkennum orðflokka og gert sér grein fyrir hlutverki þeirra í eigin texta og annarra [ANG-ÍSL-FLO-10]
|
Orðtök og málshættir
|
leikið sér með margræðni tungumálsins svo sem í gegnum orðtök, einfalda málshætti og föst orðasambönd [ANG-ÍSL-ORM-4]
|
notað algeng orðtök og málshætti í töluðu máli og rituðu og greint notagildi þeirra í texta [ANG-ÍSL-ORM-7]
|
beitt fleygum orðum, algengum orðtökum, málsháttum og föstum orðasamböndum í máli sínu [ANG-ÍSL-ORM-10]
|
Gögn og hjálpartæki
|
raðað í stafrófsröð og gert sér grein fyrir notagildi þess við leit og skipulag [ANG-ÍSL-GHJ-4]
|
nýtt sér kunnáttu og færni til að fletta upp orðum í orðabókum og öðrum gagnabrunnum um tungumál [ANG-ÍSL-GHJ-7]
|
nýtt fjölbreytt hjálpartæki til að afla sér upplýsinga um tungumálið og styðja við notkun þess [ANG-ÍSL-GHJ-10]
|