Hér má finna yfirlit yfir hæfniviðmið kafla Aðalnámsskrár grunnskóla fyrir erlend tungumál ásamt hlekkjum á undirsíður þar sem koma má fyrir ítarfefni fyrir hvert hæfniviðmið. Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:
„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“
Hlustun og áhorf
Yfirheiti
|
Við lok 1. stigs getur nemandi
|
Við lok 2. stigs getur nemandi
|
Við lok 3. stigs getur nemandi
|
Frásagnir og kynningar
|
skilið algeng orð, einföld fyrirmæli og frásagnir og brugðist við þeim [ANG-ERL-HFK-1]
|
skilið talað mál og frásagnir um efni tengt námi hans og daglegu lífi, brugðist við þeim og nýtt sér í námi sínu [ANG-ERL-HFK-2]
|
skilið aðalatriði úr kynningum og frásögnum um margvísleg málefni, unnið úr þeim eða nýtt sér á annan hátt [ANG-ERL-HFK-3]
|
Fjöl- og myndmiðlar
|
fylgt meginþræði í einföldu efni sem höfðar til barna og unglinga [ANG-ERL-FMM-1]
|
fylgt þræði í efni við hæfi á margvíslegum miðlum og nýtt í námi sínu [ANG-ERL-FMM-2]
|
fylgst með fjölbreyttu efni í fjöl- og myndmiðlum, unnið úr því eða nýtt sér á annan hátt [ANG-ERL-FMM-3]
|
Greining upplýsinga
|
hlustað eftir einföldum upplýsingum og nýtt sér í námi sínu [ANG-ERL-UPP-1]
|
hlustað eftir aðalatriðum, greint þau og nýtt sér í námi sínu [ANG-ERL-UPP-2]
|
hlustað eftir upplýsingum, valið þær sem eiga við hverju sinni og unnið úr þeim [ANG-ERL-UPP-3]
|
Yfirheiti
|
Við lok 1. stigs getur nemandi
|
Við lok 2. stigs getur nemandi
|
Við lok 3. stigs getur nemandi
|
Greining aðalatriða
|
fundið afmarkaðar upplýsingar í einföldum texta og nýtt sér í verkefnavinnu [ANG-ERL-AÐL-1]
|
fundið lykilupplýsingar í texta og nýtt sér í verkefnavinnu [ANG-ERL-AÐL-2]
|
aflað sér upplýsinga úr texta, greint aðalatriði frá aukaatriðum og nýtt sér í verkefnavinnu [ANG-ERL-AÐL-3]
|
Rauntextar
|
skilið megininntak einfaldra rauntexta með stuðningi ef þarf [ANG-ERL-RTX-1]
|
skilið megininntak rauntexta og unnið úr efni þeirra [ANG-ERL-RTX-2]
|
lesið sér til fróðleiks rauntexta af fjölbreyttum miðlum, brugðist við efni þeirra eða unnið úr þeim á annan hátt [ANG-ERL-RTX-3]
|
Bókmenntir
|
lesið stuttar sögur og bækur á einföldu máli sér til ánægju [ANG-ERL-BKM-1]
|
lesið sér til gagns og ánægju einfaldar smásögur og skáldsögur og unnið með efni þeirra [ANG-ERL-BKM-2]
|
lesið sér til gagns og ánægju fjölbreyttar bókmenntir við hæfi, unnið með efni þeirra og gert sér grein fyrir gildi bókmennta [ANG-ERL-BKM-3]
|
Aðrar námsgreinar
|
lesið stutt og auðlesið efni tengt öðrum námsgreinum [ANG-ERL-ANG-1]
|
lesið og skilið auðlesið efni og hugtök tengt öðrum námsgreinum [ANG-ERL-ANG-2]
|
lesið, skilið og unnið með efni og hugtök tengt öðrum námsgreinum [ANG-ERL-ANG-3]
|
Orðaforði
|
lesið og skilið stutta texta með grunnorðaforða daglegs lífs [ANG-ERL-ORF-1]
|
lesið og skilið texta við hæfi sem innihalda algengan orðaforða [ANG-ERL-ORF-2]
|
lesið, skilið og unnið með fjölbreyttan orðaforða úr ýmsum textum [ANG-ERL-ORF-3]
|
Yfirheiti
|
Við lok 1. stigs getur nemandi
|
Við lok 2. stigs getur nemandi
|
Við lok 3. stigs getur nemandi
|
Óformlegt samtал
|
spurt og svarað á einfaldan hátt um það sem stendur honum næst [ANG-ERL-ÓFS-1]
|
tekið þátt í óformlegu samtali um áhugamál sín og daglegt líf [ANG-ERL-ÓFS-2]
|
tekið þátt í óformlegu samtali með því að umorða og nota föst orðasambönd úr daglegu máli [ANG-ERL-ÓFS-3]
|
Almenn samskipti
|
tekist á við aðstæður í skólastofunni í einföldum samskiptum [ANG-ERL-ALS-1]
|
bjargað sér við algengar aðstæður og notað almennar kurteisis- og samskiptavenjur [ANG-ERL-ALS-2]
|
tekist á við margs konar aðstæður í almennum samskiptum, miðlað og tekið á móti upplýsingum [ANG-ERL-ALS-3]
|
Samræður
|
tekið þátt í einföldum samræðum í skólastofunni [ANG-ERL-SMR-1]
|
notað málið til samskipta í kennslustundum og undirbúið, tekið og veitt viðtal [ANG-ERL-SMR-2]
|
tekið þátt í samræðum um kunnugleg málefni og látið skoðun sína í ljós [ANG-ERL-SMR-3]
|
Yfirheiti
|
Við lok 1. stigs getur nemandi
|
Við lok 2. stigs getur nemandi
|
Við lok 3. stigs getur nemandi
|
Tjáning
|
tjáð sig á einfaldan hátt um sjálfan sig og líf sitt [ANG-ERL-TJÁ-1]
|
tjáð sig um reynslu sína og skoðanir og brugðist við einföldum spurningum [ANG-ERL-TJÁ-2]
|
tjáð sig skipulega um efni sem hann þekkir eða hefur unnið með í námi sínu og brugðist við spurningum [ANG-ERL-TJÁ-3]
|
Frásögn og kynning
|
undirbúið og flutt einfalda frásögn eða kynningu um efni sem hann þekkir vel [ANG-ERL-FKY-1]
|
undirbúið og flutt frásögn eða kynningu og brugðist við einföldum spurningum [ANG-ERL-FKY-2]
|
flutt frásögn eða kynningu um undirbúið efni af öryggi og svarað spurningum [ANG-ERL-FKY-3]
|
Flutningur
|
flutt einfalt atriði sem hann hefur haft tækifæri til að æfa [ANG-ERL-FLT-1]
|
flutt tilbúið eða frumsamið efni, einn eða í félagi við aðra [ANG-ERL-FLT-2]
|
samið, æft og flutt eigið efni, einn eða í félagi við aðra [ANG-ERL-FLT-3]
|
Framsögn
|
tjáð sig nokkuð skiljanlega hvað varðar framburð og áherslur [ANG-ERL-FRS-1]
|
beitt málinu með nokkuð eðlilegum framburði og áherslum [ANG-ERL-FRS-2]
|
beitt málinu með eðlilegum framburði, áherslum og hrynjandi [ANG-ERL-FRS-3]
|
Yfirheiti
|
Við lok 1. stigs getur nemandi
|
Við lok 2. stigs getur nemandi
|
Við lok 3. stigs getur nemandi
|
Samfelldur texti
|
skrifað einfaldan texta með orðaforða úr efnisflokkum sem fengist er við [ANG-ERL-SMT-1]
|
skrifað texta af mismunandi gerðum með inntak og lesanda í huga [ANG-ERL-SMT-2]
|
skrifað lipran, samfelldan texta af ólíkum gerðum í samræmi við inntak og tilgang með skrifunum [ANG-ERL-SMT-3]
|
Málnotkun
|
byggt upp einfaldar setningar, stafsett algeng orð og notað algeng greinarmerki [ANG-ERL-MNT-1]
|
beitt grunnreglum málfræði og stafsetningar nokkuð rétt og skapað samhengi í texta [ANG-ERL-MNT-2]
|
sýnt góð tök á orðaforða, meginreglum málnotkunar og notað tengiorð við hæfi [ANG-ERL-MNT-3]
|
Endursögn
|
skrifað einfalda texta um efni sem tengist námi hans [ANG-ERL-ENS-1]
|
skrifað einfalda texta um það sem hann hefur lesið, séð eða heyrt [ANG-ERL-ENS-2]
|
skrifað skilmerkilega um efni sem hann hefur lesið, séð eða heyrt [ANG-ERL-ENS-3]
|
Persónuleg reynsla
|
skrifað á einföldu máli um efni sem hann þekkir vel [ANG-ERL-PER-1]
|
lýst atburðarás eða reynslu með orðaforða sem unnið hefur verið með [ANG-ERL-PER-2]
|
skrifað um skoðanir sínar, tilfinningar, reynslu og þekkingu með fjölbreyttum orðaforða [ANG-ERL-PER-3]
|
Skapandi ritun
|
samið stutta texta frá eigin brjósti [ANG-ERL-SKR-1]
|
samið einfalda texta þar sem ímyndunaraflið fær að njóta sín [ANG-ERL-SKR-2]
|
samið texta og leikið sér með málið þar sem sköpunargáfan og ímyndunaraflið fá að njóta sín [ANG-ERL-SKR-3]
|
Yfirheiti
|
Við lok 1. stigs getur nemandi
|
Við lok 2. stigs getur nemandi
|
Við lok 3. stigs getur nemandi
|
Samfélag
|
sýnt að hann þekkir til ýmissa sérkenna menningarsvæðisins [ANG-ERL-SAM-1]
|
sýnt að hann þekkir til ýmissa þátta sem einkenna menningu og daglegt líf [ANG-ERL-SAM-2]
|
sýnt að hann þekkir til samfélagsgerðar, menningar og einkenna þjóðfélagsins [ANG-ERL-SAM-3]
|
Fjölbreytileiki
|
gert sér grein fyrir mismunandi siðum og hefðum á viðkomandi málsvæði [ANG-ERL-FJB-1]
|
sett sig í spor fólks á viðkomandi málsvæði og gert sér grein fyrir hvað er líkt eða ólíkt með hans eigin aðstæðum [ANG-ERL-FJB-2]
|
gert sér grein fyrir fjölbreyttum uppruna íbúa á viðkomandi málsvæði og áhrifum fordóma [ANG-ERL-FJB-3]
|
Skyldleiki og afbrigði tungumála
|
sýnt að hann áttar sig á að mörg algeng orð í erlenda tungumálinu eru lík og skyld öðrum sem hann þekkir [ANG-ERL-SKT-1]
|
sýnt að hann áttar sig á skyldleika erlenda málsins við íslensku, eigið móðurmál eða önnur tungumál sem hann er að læra [ANG-ERL-SKT-2]
|
greint á milli helstu afbrigði tungumálsins [ANG-ERL-SKT-3]
|