Notandi:Martin/Vísindasmiðjur/Ógegndræp grisja

Úr Kennarakvika

Útgáfa frá 19. maí 2024 kl. 11:26 eftir Martin (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. maí 2024 kl. 11:26 eftir Martin (spjall | framlög) (→‎Ítarefni)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Markmið[breyta | breyta frumkóða]

Að kanna yfirborðsspennu vatns.

Áhöld og efni[breyta | breyta frumkóða]

  • Vatn
  • Glas
  • Grisja
  • Teygja sem passar utan um glasið
  • Tannstönglar, eldspýtur eða annað álíka sem flýtur
  • Bakki til að grípa vatn ef (þegar!) það sullast

Framkvæmd[breyta | breyta frumkóða]

Hellum vatni í glas, strengjum grisju yfir og festum með teygju. Snúum glasinu á hvolf og fylgjumst með því hvað gerist.

Prófum að snerta grisjuna og stinga eldspýtum inn i gegnum hana og fylgjumst með hvað gerist.

Niðurstöður[breyta | breyta frumkóða]

Lýsið í eigin orðum hvað gerist.

Ítarefni[breyta | breyta frumkóða]

Þetta verkefni sýnir samloðun vatns. Þegar við höldum glasi á hvolfi með einhverju eins og kartoni helst vatnið í glasinu vegna loftþrýstings utan þess. Ef við tökum kartonið frá þarf vatnið ekki að falla allt samtímis heldur getur það myndað dropa á einum stað og loftbóla farið inn á öðrum.

Með því að setja grisjuna fyrir opið á glasinu komum við í veg fyrir að dropar myndist því götin á grisjunni eru svo lítil að samloðun vatnsins veldur því að droparnir geta ekki myndast. Við tölum um þetta sem yfirborðsspennu vatnsins.