Notandi:Martin/Vísindasmiðjur/Þéttleiki heits og kalds vatns

Úr Kennarakvika

Útgáfa frá 19. maí 2024 kl. 09:28 eftir Martin (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. maí 2024 kl. 09:28 eftir Martin (spjall | framlög) (Ný síða: == Markmið == Að kanna þéttleika (einnig kallað eðlismassa) heits og kalds vatns. == Áhöld og efni == * Tvö jafnstór glös * Vatn * Matarlitur * Hraðsuðuketill * Tvær vatnskönnur * Spjald sem getur lokað glasinu ''Valkvæmt'' * Kar til að gera tilraunina í (ef það skyldi sullast vatn). == Framkvæmd == :''Gætið þess að vera með hanska eða að vatnið verði ekki svo heitt að þið getið ekki handleikið glösin.'' Hitum vatn, hellum í vatnskönnu o...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Markmið

Að kanna þéttleika (einnig kallað eðlismassa) heits og kalds vatns.

Áhöld og efni

  • Tvö jafnstór glös
  • Vatn
  • Matarlitur
  • Hraðsuðuketill
  • Tvær vatnskönnur
  • Spjald sem getur lokað glasinu

Valkvæmt

  • Kar til að gera tilraunina í (ef það skyldi sullast vatn).

Framkvæmd

Gætið þess að vera með hanska eða að vatnið verði ekki svo heitt að þið getið ekki handleikið glösin.

Hitum vatn, hellum í vatnskönnu og merkjum með rauðum matarlit. Hellum köldu kranavatni í aðra vatnskönnu og merkjum með bláum matarlit.

Hellum köldu vatni í glas svo það sé barmafullt. Hellum heitu vatni í glas, leggjum spjal ofan á og hvolfum því svo spjaldið haldi vatninu inni. Leggjum glasið með heita vatninu á hvolfi ofan á glasið með kalda vatninu og drögum spjaldið varlega undan svo ekkert sullist út. Fylgjumst með því hvað gerist.

Endurtökum þetta á hinn veginn: Fyllum glas barmafullt af heitu vatni og hvolfum glasi með köldu vatni yfir það heita. Drögum spjaldið undan glasinu með kalda vatninu og fylgjumst með hvað gerist.

Niðurstöður

Ræðið hvað gerðist ykkar á milli og berið það undir kennarann. Lýsið svo því sem gerist í ykkar eigin orðum.