Notandi:Martin/Vísindasmiðjur/Glös á hvolfi

Úr Kennarakvika

Útgáfa frá 9. júní 2024 kl. 00:27 eftir Martin (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júní 2024 kl. 00:27 eftir Martin (spjall | framlög) (→‎Áhöld og efni: karton -> álpappír/spjald)

Markmið

Að kanna þrýsting í glösum sem haldið er á hvolfi.

Áhöld og efni

  • Glas
  • Vatn
  • Álpappír eða þunnt spjald
  • Bakki til að grípa vatnið ef (þegar!) það sullast niður

Framkvæmd

Klippum niður karton svo það passi yfir glasið. Hellum vatni í glas (alveg eða næstum upp að brún) og leggjum kartonið yfir. Höldum kartoninu þétt upp við opið á glasinu og snúum því á hvolf. Drögum höndina frá kartoninu og fylgjumst með því hvað gerist.

Niðurstöður

Lýsið því í eigin orðum hvað gerðist.

Til nemenda

Þetta kann að líta nokkuð ótrúlega út því vatn ætti að detta niður og kartonið er ekki fast við glasið. En hvað er það þá sem heldur því uppi?!

Það er loftið sem er allt í kringum okkur. Loft er gert úr sameindum sem eru á stöðugri hreyfingu og rekast utan í allt sem það snertir. Við tökum alla jafna ekki mikið eftir þessu því þessi svokallaði loftþrýstingur er allt í kringum okkur. Við getum samt fundið fyrir því ef loftþrýstingurinn breytist (t.d. fáum við oft hellu ef við sitjum í flugvél sem er að taka á loft eða lenda).

Utan við glasið er þá loftið að ýta á allar hliðar glassins en til þess að vatnið geti fallið niður þyrfti loftþrýstingurinn inni í því að lækka og þá þrýstir hærri loftþrýstingurinn fyrir utan glasið á kartonið og heldur vatninu uppi.

Aðrar útfærslur

Ef ekkert vatn væri í glasinu mundi kartonið detta niður þegar þið sleppið því. Hversu lítið vatn ætli þurfi til að kartonið haldist uppi?