Kóralrifið - Verkefni um hryggleysingja í sjó
Hópaverkefni, vinnið 2 saman. Sjá hópaskiptingu í meðfylgjandi skjali.
Veljið ykkur eina tegund sem lifir í kóralrifum. Tegundin verður að vera hryggleysingi (td. kóraldýr, humar, krossfiskar, holdýr eða annað sem þar er að finna). Fáið samþykki fyrir valinu ykkar áður en þið byrjið verkefnið!
Hafið í huga: Það er hægt að finna kóralrif á ýmsum stöðum í heiminum og eru lífríki þeirra mismunandi.
Spurningar sem þarf að svara er að finna í undirbúningshefti fyrir verkefnið (viðhengi). Það þarf að svara 8 spurningum af 9 (þið megið sleppa 1 spurningu, þið veljið sjálf hvaða spurningu).
Skil á verkefninu:
Þið þurfið að skila bæði texta og mynd.
Myndin af tegundinni verður hengd upp á vegg. Litið myndina ykkar, klippið hana út og við munum hengja allar tegundirnar saman upp á vegg.
Lýsingin á tegundinni á að passa á hálft til heilt A4 blað, því þarf að skila inn á Classroom og verður það prentað út fyrir ykkur.
Matskvarði "Matsblað fyrir Kóralrifið" sýnir hvað verður metið.
Hlekkur þar sem má finna Matsblað (líka aðlagað), undirbúningshefti, dæmi um lokaafurð (texta), glærupakka með lýsingu á verkefni og mynd af lokaafurð hjá einum hóp:
https://drive.google.com/drive/folders/1AF04kka1vQcEdPh1FDs9XMrHIIr6NxAw?usp=sharing
Þetta verkefni er byggt á bls. 75-85 í Lífheiminum (Litróf náttúrunnar). Heimildarmynd sem kveikja: The Last Reef https://www.documentaryarea.com/video/The+Last+Reef/