Klassísk efnahvörf/Fílatannkrem
Úr Kennarakvika
Fílatannkrem
Efni og áhöld
- Stórt tilraunaglas
- Lítið bikarglas
- Vetnisperoxíð () 30%
- Kalíumjoðíð ()
- Uppþvottalögur
- Vatn
- Sloppur
- Öryggisgleraugu
- Hanskar
Framkvæmd
Mælið 50ml af vetnisperoxíði í stóra mæliglasið. Blandið um matskeið af uppþvottalegi í glasið. Blandið með því að sveifla glasinu gætilega í hringi.
Mælið 25ml af vatni í lítið bikarglas. Bætið Kalíumjoðíði við þar til lausnins er mettuð.
Farið út með glösin og stillið þeim upp. Einn nemandi þarf að hella kalíumjoðíðlausninni út í vetnisperoxíðblönduna. Fylgist með hvað gerist.
Ítarefni
Hvað er að gerast?
Vetnisperoxíð brotnar náttúrulega niður í vatn og súrefni sem myndar froðu en niðurbrotsefnahvarfið er hægt.
Því má hins vegar hraða með því að bæta hvata út í það. Joðíðið úr kalíumjoðíðinu leikur þetta hlutverk í fílatannkremsefnahvarfinu. Það hjálpar til við að losa súrefnissameind frá tveimur vetnisperoxíðssameindum en er ekki hluti af lokasameindunum og er því óbreytt að endingu.
Uppþvottalögurinn lætur froðuna endast lengur.
Efnahvarfið er útvermið svo froðan er nokkuð heit eftir niðurbrotið. Sýna má að froðan inniheldur súrefni með því að bera glóð eða eld að henni.
Hvatar (eða efnahvatar) eru efni sem hjálpa til við efnahvörf með því að lækka orkuþröskuldinn sem þarf til þess að efnahvörf geti átt sér stað.
Leiðbeiningar á öðrum síðum
- Make Elephant Toothpaste; A bubbly science project from Science Buddies, úr Science Buddies greinaröð Scientific American
- Elephant Toothpaste á vef ScienceBuddies (ekki þessu sama og hér að ofan)
- Fantastic Foamy Fountain frá Science Bob
Lesefni um efnahvarfið
- Elephant's toothpaste grein af ensku Wikipediu