„Tink@School/Listræn fuglahræða“: Munur á milli breytinga
(byrja að setja inn texta) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Um verkefnið''' | == '''Um verkefnið''' == | ||
Verkefnið gengur út á að nemendur búa til fuglahræðu úr fjölbreyttum endurvinnanlegum efniviði sem hefur verið safnað saman. Kennarar útvega auk þess nokkra nauðsynlega hluti fyrir verkefnið. | Verkefnið gengur út á að nemendur búa til fuglahræðu úr fjölbreyttum endurvinnanlegum efniviði sem hefur verið safnað saman. Kennarar útvega auk þess nokkra nauðsynlega hluti fyrir verkefnið. | ||
Útgáfa síðunnar 28. nóvember 2024 kl. 13:23
Um verkefnið
Verkefnið gengur út á að nemendur búa til fuglahræðu úr fjölbreyttum endurvinnanlegum efniviði sem hefur verið safnað saman. Kennarar útvega auk þess nokkra nauðsynlega hluti fyrir verkefnið.
Áður en kemur að gerð fuglahræðunnar eru nemendur beðnir um að safna saman efnivið sem allir geta nýtt sér. Sumar aðferðir við að hræða fugla frá ræktunarsvæðum eru ekki mjög umhverfisvænar. Í þessu verkefni vinna nemendur með vistvæna nálgun, þeir endurnýta efnivið sem hefur lokið upphaflegu hlutverki sínu og gefa honum nýtt hlutverk sem verndari í plantna.
Tenging við sjálfbærni
Verkefnið hefst með umræðum um umhverfismál og hvernig sköpunarferlið við gerð fuglahræðunnar geti verið dæmi um vinnu í anda sjálfbærni. Markmið verkefnisins er að stuðla að hugarfarsbreytingu þannig að nemendur átti sig á mikilvægi sköpunar við að nýta efnivið á nýstárlegan og frumlegan máta. Verkefnið stuðlar jafnframt að aukinni meðvitund um sjálfbærni sem skilar sér út fyrir vinnustofuna.