„Verkefni fyrir hæfniviðmið í stærðfræði“: Munur á milli breytinga
(Uppfært í samræmi við samþykkt hæfniviðmið ANG: https://adalnamskra.cdn.prismic.io/adalnamskra/ZxuFG4F3NbkBYCDx_K25_St%C3%A6r%C3%B0fr%C3%A6%C3%B0i.pdf) |
(→Rúmfræði og mælingar: Ein uppfærsla sem varð útundan...) |
||
Lína 203: | Lína 203: | ||
| notað hugtök úr rúmfræði til að lýsa hlutum í umhverfi sínu {{ang-hæfniviðmið|STÆ|TNG|4}} | | notað hugtök úr rúmfræði til að lýsa hlutum í umhverfi sínu {{ang-hæfniviðmið|STÆ|TNG|4}} | ||
| notað hugtök rúmfræðinnar til að lýsa eiginleikum hversdagslegra og fræðilegra fyrirbrigða {{ang-hæfniviðmið|STÆ|TNG|7}} | | notað hugtök rúmfræðinnar til að lýsa eiginleikum hversdagslegra og fræðilegra fyrirbrigða {{ang-hæfniviðmið|STÆ|TNG|7}} | ||
| notað | | notað hugtök og aðferðir rúmfræðinnar til að lýsa eiginleikum fræðilegra fyrirbrigðaa {{ang-hæfniviðmið|STÆ|TNG|10}} | ||
|- | |- | ||
! Verkfæri | ! Verkfæri |
Útgáfa síðunnar 5. nóvember 2024 kl. 12:39
Fram eru komnar tillögur að endurskoðun greinarsviða aðalnámsskrár grunnskóla frá 2013. Þar er m.a. ítarlegar farið í þá þætti sem snerta skuli á fagreinunum. Hér eru töflurnar úr tillögunum (bls. 70-75) settar upp með hlekkjum á hvert undir-hæfniviðmið með það að miði að tengja megi þau inn á verkefni eða efni sem miða að því að ná þeim markmiðum.
Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:
„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“
Vinnulag stærðfræðinnar
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Verkfæri og hlutbundin gögn | nýtt sér verkfæri og hlutbundin gögn sem þarf til að finna lausn á stærðfræðilegum viðfangsefnum [ANG-STÆ-VHG-4] | nýtt sér verkfæri og hlutbundin gögn til að rannsaka og finna lausn á stærðfræðilegum viðfangsefnum [ANG-STÆ-VHG-7] | valið og nýtt ólík hjálpargögn og verkfæri til stærðfræðilegrar iðkunar, þ.m.t. tölvutækni og gervigreind [ANG-STÆ-VHG-10] |
Samræður og tjáning | tekið þátt í samræðum um stærðfræði, hugtök hennar og lausnaleiðir [ANG-STÆ-SMR-4] | tjáð sig um stærðfræði, útskýrt hugsun sína fyrir öðrum og spurt spurninga til að leita lausna [ANG-STÆ-SMR-7] | tjáð sig og spurt spurninga um stærðfræðileg viðfangsefni, útskýrt og rökstutt lausnir sínar fyrir öðrum [ANG-STÆ-SMR-10] |
Táknmál og hugtök | notað rétt heiti yfir stærðfræðitákn og nýtt þau rétt við útreikninga [ANG-STÆ-TOH-4] | notað rétt heiti yfir stærðfræðitákn, nýtt þau af nákvæmni við útreikn¬inga og yfirfært milli táknmáls og daglegs máls [ANG-STÆ-TOH-7] | notað hugtök og táknmál stærðfræðinnar til að setja fram, tákna og leysa hversdagsleg og fræðileg verkefni [ANG-STÆ-TOH-10] |
Þróun aðferða | þróað hentugar aðferðir sem byggja á eigin skilningi við reikning með náttúrulegum tölum [ANG-STÆ-ÞRÓ-4] | þróað hentugar aðferðir sem byggja á eigin skilningi við reikning með ræðum tölum [ANG-STÆ-ÞRÓ-7] | þróað, útskýrt og rökstutt hentugar aðferðir sem byggja á eigin skilningi við reikning með ræðum tölum [ANG-STÆ-ÞRÓ-10] |
Sannanir | metið hvort sönnun eða einföld rök byggð á stærðfræðilegum eiginleikum eru gild [ANG-STÆ-SAN-7] | sett fram, túlkað og metið einföld stærðfræðileg rök og sannanir [ANG-STÆ-SAN-10] | |
Þrautalausnir | nýtt aðferðir og leiðir til að leysa þrautir og rök- stutt svör sín [ANG-STÆ-ÞTL-4] | leyst þrautir og rökstutt svör [ANG-STÆ-ÞTL-7] | nýtt fjölbreyttar reikniaðgerðir og stærðfræðilegt samhengi til að leysa þrautir og rökstutt svör sín [ANG-STÆ-ÞTL-10] |
Rannsóknarvinna | unnið, einn og í sam-vinnu, að lausnum á stærðfræðilegu við-fangsefni með því að kanna, rannsaka og setja fram tilgátur [ANG-STÆ-SMV-4] | unnið skipulega, einn og í samvinnu, að því að finna lausnir á stærðfræðilegum viðfangsefnum með því að kanna, rannsaka, greina og meta [ANG-STÆ-SMV-7] | unnið skipulega, einn og í samvinnu, að því að rannsaka, setja fram, greina, túlka og meta stærðfræðileg viðfangs-efni og líkön [ANG-STÆ-SMV-10] |
Kynningar | undirbúið og flutt stuttar kynningar á eigin vinnu með stærðfræði [ANG-STÆ-KYN-4] | undirbúið og flutt kynningar á eigin vinnu með stærðfræði [ANG-STÆ-KYN-7] | undirbúið og flutt kynningar og skrifað texta um eigin vinnu með stærðfræði [ANG-STÆ-KYN-10] |
Reiknihugsun og forritun | búið til einföld reiknirit og tjáð þau með því að nota breytur, skilyrði og lykkjur [ANG-STÆ-FOR-4] | notað forritun til að rannsaka gögn í töflum [ANG-STÆ-FOR-7] | rannsakað stærðfræðilega eiginleika og samhengi með því að nota forritun [ANG-STÆ-FOR-10] |
Tölur og reikningur
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Röðun talna og talnamengi | raðað náttúrulegum tölum og einföldum brotum eftir stærð [ANG-STÆ-TME-4] | raðað ræðum tölum eftir stærð og útskýrt tengsl þeirra við heiltölur [ANG-STÆ-TME-7] | útskýrt eiginleika í talnamengjum náttúrulegra talna, heilla talna, ræðra talna og rauntalna [ANG-STÆ-TME-10] |
Námundun | nýtt sér námundun við einfalda útreikninga með náttúrulegum tölum [ANG-STÆ-NMD-4] | nýtt sér námundun við útreikninga með heiltölum og tugabrotum [ANG-STÆ-NMD-7] | nýtt sér námundun með viðeigandi nákvæmni í útreikningum [ANG-STÆ-NMD-10] |
Sætiskerfi | notað tugakerfisrithátt og sýnt skilning á sætiskerfi við ritun náttúrulegra talna [ANG-STÆ-SÆT-4] | notað tugakerfisrithátt og sýnt skilning á sætiskerfi við ritun tugabrota [ANG-STÆ-SÆT-7] | notað tugakerfisrithátt og sýnt skilning á sætiskerfi við ritun staðalforms tölu [ANG-STÆ-SÆT-10] |
Grunnreikni-aðgerðirnar | nýtt sér grunnreikniaðgerðirnar fjórar og reiknað með náttúrulegum tölum [ANG-STÆ-GRU-4] | nýtt sér grunnreikniaðgerðirnar fjórar og reiknað með ræðum tölum [ANG-STÆ-GRU-7] | reiknað með rauntölum og nýtt sér tengsl og samhengi reikniaðgerðanna við útreikninga [ANG-STÆ-GRU-10] |
Hlutföll | unnið með einföld brot og hlutföll með flatarlíkani, á talnalínu og á brotastriki [ANG-STÆ-HLU-4] | sett hlutfall fram sem almennt brot, tugabrot og prósentu og beitt þeim við rauntengd viðfangsefni [ANG-STÆ-HLU-7] | skýrt sambandið milli almennra brota, tugabrota og prósenta og beitt þeim við rauntengd viðfangsefni [ANG-STÆ-HLU-10] |
Reiknireglur | nýtt sér reiknireglur, tengsl reikniaðgerðanna og forgangsröð aðgerða við útreikninga [ANG-STÆ-RKR-7] | nýtt sér samhengi og tengsl reikniaðgerðanna og þekkingu sína í talnafræði við útreikninga [ANG-STÆ-RKR-10] | |
Rætur og veldi | reiknað með veldum og ferferningsrótum í einföldum tilvikum. [ANG-STÆ-ROV-10] | ||
Fjármál | notað grunnreikniaðgerðir til að finna lausnir á og takast á við verkefni daglegs lífs og fjármála og skilið verðgildi peninga [ANG-STÆ-FJÁ-4] | nýtt stærðfræði til að takast á við verkefni er tengjast helstu hugtökum persónulegra fjármála og haldið utan um eigin fjármál [ANG-STÆ-FJÁ-7] | nýtt helstu hugtök fjármála í tengslum við eigin fjármál, launagreiðslur, skatta og fjárfestingar og nýtt þau við útreikninga og úrlausnir verkefna daglegs lífs [ANG-STÆ-FJÁ-10] |
Algebra
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Mynstur | kannað, búið til og tjáð sig um reglur í talnarunum og myndrænum mynstrum og spáð fyrir um framhald mynsturs [ANG-STÆ-AMY-4] | kannað og búið til rúmfræðileg mynstur og nýtt sér táknmál algebrunnar til að vinna með þau [ANG-STÆ-AMY-7] | unnið með talnarunur og mynstur á skipulegan hátt og lýst þeim með táknmáli algebrunnar [ANG-STÆ-AMY-10] |
Hnitakerfi | notað rúðunet með höfuðáttum í rauntengdu samhengi, teiknað og staðsett punkta í hnitakerfi [ANG-STÆ-AHN-4] | teiknað og staðsett punkta í hnitakerfi og notað hnit til að teikna flatarmyndir [ANG-STÆ-AHN-7] | túlkað gröf beinna lína í hnitakerfi í rauntengdu samhengi, teiknað þau á blaði og stafrænt og notað teikningarnar til að leysa jöfnur [ANG-STÆ-AHN-7] |
Föll | notað táknmál stærðfræðinnar til að meta sanngildi og lýsa sambandi milli stærða [ANG-STÆ-FLL-4] | rannsakað og sett fram talnarunur og lýst þeim með myndum, orðum og fallstærðum [ANG-STÆ-FLL-7] | unnið með fallahugtakið á mismunandi formi og við mismunandi aðstæður, bæði á blaði og með stafrænum verkfærum [ANG-STÆ-FLL-10] |
Óþekktar stærðir | reiknað með óþekktum stærðum í einföldum tilvikum [ANG-STÆ-ÓÞS-4] | notað bókstafi til að tákna óþekktar stærðir og reiknað með þeim [ANG-STÆ-ÓÞS-7] | einfaldað algebrustæður og leyst jöfnur með einni óþekktri stærð [ANG-STÆ-ÓÞS-10] |
Jöfnur og ójöfnur | fundið eina óþekkta stærð í jöfnu með heiltölum og rökstutt lausnir sínar [ANG-STÆ-JFN-4] | fundið lausnir á jöfnum með því að nota algengar reiknireglur [ANG-STÆ-JFN-7] | sett fram jöfnur og ójöfnur út frá gefnum forsendum og túlkað merkingu lausnar sinnar við raunverulegt samhengi [ANG-STÆ-JFN-10] |
Jöfnuhneppi | leyst saman jöfnur með fleiri en einni óþekktri stærð [ANG-STÆ-JHN-10] | ||
Margliður | fundið skurðpunkta við ása og útskýrt tengsl við þáttun og staðalform fyrir fyrsta og annars stigs margliður [ANG-STÆ-MGL-10] |
Tölfræði og líkindi
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Gagnavinnsla | safnað gögnum í umhverfi sínu og um eigið áhugasvið og túlkað á einfaldan hátt [ANG-STÆ-GVN-4] | safnað og unnið úr gögnum, miðlað upplýsingum um þau með fjölbreyttum hætti [ANG-STÆ-GVN-7] | notað tölfræðihugtök til að setja fram, lýsa, skýra og túlka gögn [ANG-STÆ-GVN-10] |
Tölfræðikannanir | talið, flokkað og skráð, lesið og túlkað niðurstöður og sett upp í einföld myndrit, með og án stafrænna hjálpartækja [ANG-STÆ-KAN-4] | gert einfaldar tölfræðikannanir og framkvæmt einfalda tölfræðiútreikninga [ANG-STÆ-KAN-7] | skipulagt og framkvæmt tölfræðikannanir og dregið ályktanir af þeim [ANG-STÆ-KAN-10] |
Myndrit | lesið úr einföldum myndritum [ANG-STÆ-MDR-4] | lesið, útskýrt og túlkað gögn og upplýsingar sem gefnar eru í töflum og myndritum [ANG-STÆ-MDR-7] | lesið, skilið og lagt mat á tölfræðilegar upplýsingar sem settar eru fram opinberlega [ANG-STÆ-MDR-10] |
Líkindatilraunir | gert einfaldar tilraunir með líkur og sett í samhengi við spil [ANG-STÆ-TLR-4] | dregið ályktanir um líkur út frá eigin tilraunum og borið saman við fræðilegar líkur [ANG-STÆ-TLR-7] | framkvæmt tilraunir þar sem líkur og tilviljun koma við sögu og túlkað niðurstöður sínar [ANG-STÆ-TLR-10] |
Líkindareikningur | reiknað út líkur í einföldum tilvikum [ANG-STÆ-LÍK-7] | notað hugtök í líkindareikningi, eins og skilyrtar líkur, óháða atburði og einfaldar talningar til að reikna og túlka líkur á atburðum [ANG-STÆ-LÍK-10] |
Rúmfræði og mælingar
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Tungumál | notað hugtök úr rúmfræði til að lýsa hlutum í umhverfi sínu [ANG-STÆ-TNG-4] | notað hugtök rúmfræðinnar til að lýsa eiginleikum hversdagslegra og fræðilegra fyrirbrigða [ANG-STÆ-TNG-7] | notað hugtök og aðferðir rúmfræðinnar til að lýsa eiginleikum fræðilegra fyrirbrigðaa [ANG-STÆ-TNG-10] |
Verkfæri | rannsakað, gert tilraunir og teikningar á einfaldan hátt, t.d. með því að nota rúmfræðiforrit og hlutbundin gögn [ANG-STÆ-RVF-4] | rannsakað og gert tilraunir í rúmfræði með því að nota rúmfræðiforrit og hlutbundin gögn [ANG-STÆ-RVF-7] | nýtt rúmfræðiforrit til að gera teikningar, rannsaka rúmfræðilega eiginleika og setja fram rök [ANG-STÆ-RVF-10] |
Mynstur | speglað og hliðrað flatarmyndum við rannsóknir á mynstrum [ANG-STÆ-RMY-4] | hliðrað, speglað eða snúið flatarmyndum, til dæmis við rannsóknir á mynstrum [ANG-STÆ-RMY-7] | |
Skýringarmyndir | gert óformlegar rannsóknir á tví- og þrívíðum formum, teiknað skýringarmyndir af þeim og hlutum í umhverfi sínu [ANG-STÆ-SKM-4] | rannsakað og greint tvívíð og þrívíð form, teiknað einfaldar flatar- og þrívíddarmyndir og notað til þess mælikvarða og einslögun [ANG-STÆ-SKM-7] | teiknað skýringarmyndir og unnið með teikningar annarra út frá gefnum forsendum, t.d. um mælikvarða, einslögun og hlutföll, rannsakað og lýst sambandi milli teikningar og hlutar [ANG-STÆ-SKM-10] |
Tími og klukkan | lesið og notað mismunandi framsetningu á tíma, notað skífu- og stafræna klukku og lesið tímatöflur [ANG-STÆ-TÍM-4] | beitt jafngildi milli ólíkra tímaeininga til að ákvarða liðinn tíma af nákvæmni [ANG-STÆ-TÍM-7] | beitt brotum úr tímaeiningum og reiknað á milli tímabelta [ANG-STÆ-TÍM-10] |
Mælieiningar | valið viðeigandi mælieiningu fyrir lengd, massa og rúmmál og þekkt tengsl á milli algengra mælieininga metrakerfisins innbyrðis [ANG-STÆ-EIN-4] | beitt tengslum á milli lengdar-, flatar-, rúmmáls-, tíma- og massaeininga metrakerfisins innbyrðis [ANG-STÆ-EIN-7] | útskýrt tengsl mælieininga metrakerfis og túlkað miðað við önnur kerfi [ANG-STÆ-EIN-10] |
Mælingar | áætlað og mælt massa, lengd, rúmmál, tíma og hitastig með stöðluðum og óstöðluðum mælitækjum [ANG-STÆ-MÆL-4] | áætlað og mælt massa, lengd, rúmmál, hraða, tíma og hitastig með viðeigandi mælikvarða og dregið ályktanir af mælingunum [ANG-STÆ-MÆL-7] | |
Tvívíð form | áætlað og mælt ummál og flatarmál með stöðluðum og óstöðluðum mælitækjum [ANG-STÆ-TVÍ-4] | áætlað, mælt og reiknað hornastærðir, ummál og flatarmál marghyrninga og gráður í hringgeira [ANG-STÆ-TVÍ-7] | beitt þekktum eiginleikum lína, þríhyrninga og annarra marghyrninga til að reikna hliðarlengdir og horn, reiknað og útskýrt tengsl milli grundvallareiginleika hrings, útskýrt og beitt reglu Pýþagórasar [ANG-STÆ-TVÍ-10] |
Þrívíð form | borið kennsl á tening, kúlu, keilu, sívalning, píramída og strendinga | áætlað og reiknað rúmmál og yfirborðs-flatarmál þrístrendings, réttstrendings og píramída [ANG-STÆ-ÞRÍ-7] | mælt stærðir á þrívíðum formum, áætlað og reiknað rúmmál og yfirborðsflatarmál og skilið tengsl við tvívíð form, samhverfu og snúningsmiðju [ANG-STÆ-ÞRÍ-10] |