„Notandi:Martin/Vísindasmiðjur/Glös á hvolfi“: Munur á milli breytinga
Lína 15: | Lína 15: | ||
</div> | </div> | ||
<br style="clear: both"> | |||
== Niðurstöður == | == Niðurstöður == | ||
:''Lýsið því í eigin orðum hvað gerðist.'' | :''Lýsið því í eigin orðum hvað gerðist.'' |
Útgáfa síðunnar 9. júní 2024 kl. 00:30
Markmið
Að kanna þrýsting í glösum sem haldið er á hvolfi.
Áhöld og efni
- Glas
- Vatn
- Álpappír eða þunnt spjald
- Bakki til að grípa vatnið ef (þegar!) það sullast niður
Framkvæmd
Niðurstöður
- Lýsið því í eigin orðum hvað gerðist.
Til nemenda
Þetta kann að líta nokkuð ótrúlega út því vatn ætti að detta niður og kartonið er ekki fast við glasið. En hvað er það þá sem heldur því uppi?!
Það er loftið sem er allt í kringum okkur. Loft er gert úr sameindum sem eru á stöðugri hreyfingu og rekast utan í allt sem það snertir. Við tökum alla jafna ekki mikið eftir þessu því þessi svokallaði loftþrýstingur er allt í kringum okkur. Við getum samt fundið fyrir því ef loftþrýstingurinn breytist (t.d. fáum við oft hellu ef við sitjum í flugvél sem er að taka á loft eða lenda).
Utan við glasið er þá loftið að ýta á allar hliðar glassins en til þess að vatnið geti fallið niður þyrfti loftþrýstingurinn inni í því að lækka og þá þrýstir hærri loftþrýstingurinn fyrir utan glasið á kartonið og heldur vatninu uppi.
Aðrar útfærslur
Ef ekkert vatn væri í glasinu mundi kartonið detta niður þegar þið sleppið því. Hversu lítið vatn ætli þurfi til að kartonið haldist uppi?